Þann 1. janúar 2026 urðu breytingar á tekjubili í skattþrepum og fjárhæð persónuafsláttar. Skatthlutfall í staðgreiðslu samanstendur annarsvegar af tekjuskatti og hins vegar meðalútsvari (14,94%). Skatthlutfallið á árinu 2026 er:
- 31,49% af tekjum 0 – 498.122 kr. (þar af 16,55% tekjuskattur)
- 37,99% af tekjum 498.123 – 1.398.450 kr. (þar af 23,05% tekjuskattur)
- 46,29% af tekjum yfir 1.398.450 (þar af 31,35% tekjuskattur)
Persónuafsláttur er nú 869.898 kr. á ári, eða 72.492 kr. á mánuði.
Nánar á skattur.is