Aðalfundur Sjómannadeildar 2025

Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar stéttarfélags verður haldinn mánudaginn 29. desember 2025 í fundarsal félagsins. Fundurinn hefst kl. 17:00.

Dagskrá:

  1. Venjuleg aðalfundarstörf
  2. Önnur mál

Mikilvægt er að sjómenn láti sjá sig á fundinum og taki þátt í líflegum umræðum, ekki síst formannskjöri en fyrir liggur að sitjandi formaður, Jakob Gunnar Hjaltalín, gefur ekki kost á sér áfram eftir áratuga þjónustu við sjómenn. Í tilefni af því verður fundurinn óvenju veglegur í ár.

Stjórn deildarinnar

Deila á