Stjórnendur Framsýnar og Framhaldsskólans á Húsavík hafa undanfarið átt í viðræðum um nýjan stofnanasamning fyrir starfsmenn skólans sem starfa eftir kjarasamningi félagsins. Viðræðurnar hafa gengið mjög vel og kláruðust þær í morgun með undirskrift aðila. Breytingarnar koma til með að veita stjórnendum skólans aukið svigrúm til að launasetja starfsmenn í launatöflu m.v. hæfni, ábyrgð, reynslu og menntun sem gagnast í starfi. Formaður Framsýnar, Aðalsteinn Árni, þakkaði Valgerði Gunnars skólameistara fyrir ánægjulegt samstarf í gegnum tíðina, sem hefur verið farsælt í alla staði, en hún lætur af störfum í sumar sem skólameistari FSH. Í hennar tíð hefur skólinn tekið verulegum breytingum, búið er að taka skólahúsnæðið allt í gegn og er hann orðinn mjög aðlaðandi fyrir nemendur og kennara. Full ástæða er til að hvetja ungt fólk sem útskrifast úr Borgarhólsskóla að hefja nám við skólann. Frábær skóli.
