PCC BakkiSilicon hf. á Húsavík hefur undanfarið m.a. fundað með þingmönnum, ráðherrum, Landsvirkjun, sveitarstjórnarmönnum og fulltrúum Framsýnar um stöðu fyrirtækisins og framtíðarhorfur. Fyrirtækið hefur nú tilkynnt um tímabundna rekstrarstöðvun, frá og með miðjum júlí. Ástæðan er sögð erfiðleikar á mörkuðum fyrir kísilmálm og raskanir sem rekja megi til tollastríðs. Um 80 manns munu missa vinnuna í sumar. Reiknað er með að um 40 starfsmenn haldi vinnunni.
Fram kemur í tilkynningu frá félaginu:
„PCC BakkiSilicon hf. hefur kynnt áform sín um tímabundna rekstrarstöðvun hjá PCC á Bakka á Húsavík frá miðjum júlí 2025. Ákvörðunin er tekin vegna erfiðleika á mörkuðum fyrir kísilmálm og nýlegra raskana á alþjóðamörkuðum í kjölfar tollastríðs.“
Jafnframt kemur fram í tilkynninguni að PCC harmi þau áhrif sem stöðvunin hefur á starfsfólk og fjölskyldur þess í nærumhverfinu, og þar með samfélagið allt. Fyrirtækið sé í reglulegu samtali við lykilhagsmunaaðila varðandi stöðu og framtíð fyrirtækisins. Markmiðið sé að finna sameiginlega lausn til að endurræsa starfsemina um leið og markaðsaðstæður leyfa.
Í samtölum við stjórnendur fyrirtækisins hefur einnig komið fram að ódýr innflutningur á niðurgreiddum kísilmálmi, sér í lagi frá Kína, með lakari sjálfbærni- og umhverfisstöðlum, hafi haft mikil áhrif á markaðsverð á Íslandi. Mikilvægt sé að íslensk stjórnvöld hraði skoðun á markaðsaðstæðum sem fyrirtæki eins og PCC Bakki glími við vegna þessa. Fyrirtækið hefur áður kært innflutning á kísilmálmi hingað til lands á undirverði til fjármála- og efnahagsráðuneytisins, sem er með málið til umfjöllunar. Þá hafi samtök kísilmálmframleiðenda í Evrópu óskað eftir verndartollum til að koma í veg fyrir að framleiðsla í Evrópusambandinu leggist af með öllu.
Fulltrúar Framsýnar, ásamt trúnaðarmönnum starfsmanna funduðu í gær með stjórnendum fyrirtækisins en aðilar hafa átt með sér mjög gott samstarf um málefni verksmiðjunnar. Þar kom fram að á meðan á rekstrarstöðvun stendur verður unnið áfram að umbótaverkefnum, rýni ferla, þjálfunarefni og endurskipulagningu rekstursins í heild. Er þetta gert til þess að vera í stakk búin til að hefja starfsemi að nýju með skömmum fyrirvara um leið og aðstæður leyfa. Fyrirtækið er áfram staðráðið í að þróa verksmiðjuna til framtíðar enda er á Bakka rekin ein nútímalegasta og umhverfisvænasta kísilmálmframleiðsla heims.
Stéttarfélögin Framsýn og Þingiðn, munu áfram sem hingað til, berjast fyrir áframhaldandi starfsemi PCC á Bakka enda um að ræða mikilvæga starfsemi á félagssvæðinu.

