Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum hafa mörg undanfarin ár staðið fyrir skemmtiferðum fyrir félagsmenn sína og hafa þær jafnan verið vinsælar og vel sóttar.
Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að bjóða upp á sumarferð á Flateyjardal í ár, laugardaginn 9. ágúst. Farið verður frá Skrifstofu stéttarfélaganna kl. 09:00. Fyrir nokkrum árum var boðið upp á slíka ferð og komust þá færri að en vildu. Um er að ræða dagsferð undir leiðsögn Óskar Helgadóttur, sem er svæðinu þar ytra vel kunnug. Ferðin er opin félagsmönnum og gestum þeirra og ætti að vera við flestra hæfi. Farið verður með Fjallasýn. Í Flateyjardal verður grillað í boði stéttarfélaganna.
Á undangengnum árum hefur orðið vart mjög vaxandi áhuga fólks á skaganum milli Eyjafjarðar og Skjálfanda og er hann orðinn vinsæll áfangastaður göngufólks og annara ferðalanga. Má því segja að skaginn hafi öðlast nýtt gildi. Til svæðisins teljast Látraströnd, í Fjörðum, á Flateyjardal, Flateyjardalsheiði, nyrst í Fnjóskadal og í Náttfaravíkum, að ógleymdri Flatey sem lúrir makindalega úti á Skjálfandanum.
Eftir þúsund ára erfiðan búskap lagðist byggð af á þessum útkjálka, en eftir stendur mikilfengleg náttúra sem er í senn angurblíð og fögur, en jafnframt ógnvekjandi og hrikaleg. Skaginn geymir sögu genginna kynslóða og þar á hvert tóftarbrot sína sögu, þar bjó kraftmikið fólk sem háði harða og óvægna baráttu við náttúruöflin.
Skráning er hafin í ferðina. Þátttökugjaldið er kr. 5.000,-. Hægt er að skrá sig í hana á Skrifstofu stéttarfélaganna eða með því að senda póst á netfangið kuti@framsyn.is. Skráning í ferðina stendur yfir til 30. júní.
Stéttarfélögin



