Allir í leikhús – félagsmenn fá afslátt

Leikdeild Eflingar frumsýnir rokksöngleikinn Ólafíu eftir Hörð Þór Benónýsson með tónlist eftir Jaan Alavere, í dag laugardagin, 15. febrúar. Sýningin hefst kl. 16. Leikstjóri er Hildur Kristín Thorstensen og tónlistarstjórn er í höndum Mariku Alavere.

Söngleikurinn fjallar um líf ungs fólks í dag og áreiti sem það verður fyrir, vímuefni, útlitsdýrkun, samfélagsmiðla og tvískinnungshátt fullorðna fólksins. Hressandi tónlist og fjör í bland við alvarlegri atburði. Sýning sem spannar allan tilfinningaskalann. Atriði í sýningunni geta valdið óhug hjá mjög ungum börnum.

Leikhúsið er sett upp sem kaffihús

Sýningar eru í Félagsheimilinu á Breiðumýri í Reykjadal. Kvenfélag Reykdæla verður með vöfflu- og veitingasölu fyrir sýningu og í hléi en leikhúsið er sett upp sem kaffihús þar sem áhorfendur sitja við borð og geta notið veitinga með sýningunni.

Miðasala í síma 618-0847 eða á netfangið umfefling@gmail.com. Félagar í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur geta fengið 1000 kr. afslátt af almennu miðaverði gegn framvísun miða sem fæst á Skrifstofu stéttarfélaganna. Hafið í huga að afsláttarkjörin eru ekki boði nema félagsmenn hafi með sér afsláttarmiða í leikhúsið. Næstu sýningar eru áætlaðar sunnudag 16. febrúar kl. 20, þriðjudag 18. febrúar kl. 20 og fimmtudag 20. febrúar kl. 20.

(Þessi frétt er tekin af þeim ágæta miðli vikubladid.is. Gerðar hafa verið nokkrar breytingar á textanum sem snúa að aðkomu stéttarfélaganna að sýningunni. Þá er myndin einnig tekin þaðan.)

Deila á