Umf. Bjarmi í Fnjóskadal hefur fjárfest í skíðagönguspora ásamt beltabúnaði og tönn. Hefur Land og Skógur, sem hefur yfirumsjón með Vaglaskógi tekið að sér að sjá um sporann, troða brautir, grisja og huga að öðru sem tryggir að allar aðstæður verði til fyrirmyndar. Nýi búnaðurinn mun gjörbreyta aðstöðu fyrir skíðagöngufólk og annað útivistarfólk sem sækja skóginn heim yfir vetrartímann. Stjórn og trúnaðarráð Framsýnar samþykkti nýverið að leggja verkefninu til kr. 200.000,-. Þannig vill félagið koma að því að efla starfsemi Ungmennafélagsins Bjarma sem gegnir líkt og önnur ungmennafélög mikilvægu hlutverki í sínu byggðarlagi. Búnaðurinn kostar nokkrar milljónir og hafa einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki lagt verkefninu lið með fjárframlögum. Það var Ósk Helgadóttir varaformaður Framsýnar sem afhendi Úllu Árdal gjöfina frá félaginu.