Ólöf Helga Adolfsdóttir er stödd á Húsavík á námskeiði á vegum Ríkissáttasemjara. Hún leit við hjá formanni Framsýnar í morgun og áttu þau gott spjall um stöðuna í verkalýðshreyfingunni og væntanlegt þing Starfsgreinasambands Íslands sem haldið verður síðar í þessum mánuði á Akureyri.
Ólöf Helga hefur verið virk í verkalýðsbaráttunni undanfarin ár og setið m.a. í stjórn Eflingar frá árinu 2019. Frá því í byrjun nóvember sl. hefur hún gegnt embætti varaformanns og starfað ásamt Agniezsku Ewu Ziólkowsku að því að halda starfsemi Eflingar gangandi í gegnum frekar róstursama tíma eftir að þáverandi formaður félagsins, Sólveig Anna, sagði sig frá formennsku í Eflingu. Eins og kunnugt er hefur Sólveig Anna verið endurkjörin sem formaður Eflingar og tekur við á næsta aðalfundi félagsins sem væntanlega verður haldinn í næsta mánuði.
Ólöf Helga hefur verið virk í verkalýðsmálum í starfi hennar sem hlaðmaður á Reykjavíkurflugvelli en þar vann hún í fimm ár og gegndi embætti trúnaðarmanns þar til fyrir nokkru að henni var sagt upp störfum hjá Icelandair. Efling hefur gert alvarlegar athugasemdir við uppsögnina.