Þá er komið að því, páskarnir framundan með tilheyrandi gleði og hamingju. Að venju verðum við með sérstaka páskaúthlutun á íbúðum stéttarfélaganna. Það er á íbúðum félaganna í Reykjavík, Kópavogi og Akureyri. Frestur til að skila inn umsóknum um dvöl í íbúðunum um páskana er til 15. mars. Þeir sem sækja um fyrir þann tíma sitja fyrir við úthlutun á íbúðunum. Frekari upplýsingar eru í boði á Skrifstofu stéttarfélaganna eða með því að senda skilaboð á netfangið linda@framsyn.is
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2022/02/sidanefnd1112-013-696x522-1.jpg)