Skarpur sem er vikublað sem gefið er út á Húsavík kemur inn á málefni Framsýnar stéttarfélags í blaðinu sem kom út á föstudaginn. Eins og heimasíða stéttarfélaganna sagði frá um helgina var fjallað um öflugt starf Framsýnar-UNG í blaðinu auk þess sem sagt var frá fundi fulltrúa stéttarfélaganna Þingiðnar og Framsýnar með stjórnendum Norðurþings um húsnæðismál og stöðu mála varðandi uppbygginguna á Bakka við Húsavík. Til viðbótar voru hugleiðingar formanns Framsýnar um áramót birtar lesendum. Hægt að lesa hugleiðingar á heimasíðu stéttarfélaganna.
Kraftmikið starf Framsýnar ratar reglulega í fjölmiðla.