Samninganefndir Starfsgreinasambandsins og Flóabandalagsins undirrituðu samning við samninganefnd ríkisins í dag (7. október 2015), vegna starfsfólks aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins hjá ríkisstofnunum. Framsýn á aðild að samningnum í gegnum SGS. Samningurinn er á svipuðum nótum og samið var um á almennum markaði í vor og gildir hann frá 1. maí síðastliðnum.Hækkun frá 1. maí er 25.000 krónur. Þann 1. júní árið 2016 hækka laun um 5,5%, að lágmarki 15.000 krónur auk breytinga á launatöflu. Ári síðar, eða 1. júní 2017, hækka laun um 4,5% og 1. júní 2018 hækka laun um 3%. Samningurinn gildir til 31. mars árið 2019 og kemur þá til sérstök eingreiðsla 1. febrúar 2019 uppá 45.000 krónur fyrir starfsfólk í fullu starfi og hlutfallslega fyrir starfsfólk í hlutastarfi. Lágmarkslaun eru hækkuð til samræmis við það sem samið var um á hinum almenna vinnumarkaði og verða 300.000 krónur frá 1. júní 2018 fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem starfað hafa fjóra mánuði samfellt hjá sömu stofnun. Framlag í þróunar- og símenntunarsjóði verður hækkað í 0,82% auk þess sem aukið framlag verður sett í stofnanasamninga samkvæmt sérstakri bókun.
Um samninginn:
•Kjarasamningurinn felur í sér verulegar launahækkanir við upphaf samnings þar sem að launataxtar hækka um 25.000 kr. eða að meðaltali um 9,78%.
•Launataxtar hækka um 15.000 kr. þann 1. júní 2016 auk leiðréttingar á launatöflu sem jafngildir 5,9% hækkun að meðaltali.
•Þann 1. júní 2017 hækka launataxtar um 4,5%
•Þann 1. júní 2018 hækka laun um 3%.
•Sérstök eingreiðsla kemur 1. febrúar 2019 að upphæð kr. 45.000, miðað við þá sem eru í fullu starfi 1. janúar 2019 og hlutfallslega fyrir þá sem eru í hlutastarfi.
•Lagðar verða til 30 milljónir árlega árin 2016 – 2018 til þess að samræma stofnanasamninga þar sem horft verður til þess að leiðrétta sérstaklega þá hópa sem eru með lægri röðun í launatöflu en aðrir sambærilegir hópar.
•Framlag í fræðslusjóð eykst úr 0,67% í 0,82% sem er mjög jákvætt skref til þess að efla félagsmenn enn frekar í starfi.
•Launataxtar fyrir tímamælda ákvæðisvinnu í ræstingum hækka um tæplega 34% á samningstímanum.
•Tekjutryggingin hækkar um 86.000 kr. á samningstímanum og verður komin í 300.000 kr. frá 1. júní 2018.
•Orlofsuppbót hækkar um 21,5% á samningstímanum og fer í 42.000 kr. við upphaf samnings en verður komin í 48.000 kr. í lok samnings.
•Desemberuppbót hækkar um tæplega 21% og fer í 78.000 kr. á árinu 2015 en 89.000 í lok samningstíma.
Samninginn í heild sinni má nálgast á Skrifstofu stéttarfélganna.
Samningurinn verður á næstunni lagður fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins. Félög sem veitt hafa Starfsgreinsambandinu umboð munu halda sameiginlega rafræna atkvæðagreiðslu. SGS hvetur alla félagsmenn á kjörskrá til að nýta atkvæðisrétt sinn og greiða atkvæði með samningnum.
Gengið hefur verið frá nýjum kjarasamningi við ríkið. Félagsmenn Framsýnar munu á næstu dögum fá kjörgögn í hendur en atkvæðagreiðslan verður rafræn.