![bogga10014 010](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/10/bogga10014-010-150x150.jpg)
Forsvarsmenn og starfsmenn Framsýnar áttu ljúfa stund með Kristbjörgu Sigurðar á föstudaginn. Kristbjörg lét af störfum sem varaformaður félagsins í vor. Að því tilefni var ákveðið að bjóða henni í óvissuferð um helgina sem tókst í alla staði mjög vel og var öll hin skemmtilegasta.
![bogga10014 021](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/10/bogga10014-021-1024x682.jpg)
Drottningin kemur í Menningarhúsið Grobbholt á Skógargerðismelnum á glæsibifreið með einkabílstjóra.
![bogga10014 031](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/10/bogga10014-031-1024x682.jpg)
Boggu var vel fagnað. Formaður Þingiðnar Jónas Kristjánsson faðmaði Boggu eins og allir aðrir á svæðinu.
![bogga10014 022](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/10/bogga10014-022-1024x682.jpg)
Að sjálfsögðu stóðu menn heiðursvörð enda heiðurskona á ferð.
![bogga10014 010](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/10/bogga10014-0101-1024x682.jpg)
Boðið var upp á söngskemmtun í Menningarhúsinu, hvað annað?
![bogga10014 072](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/10/bogga10014-072-682x1024.jpg)
Bogga skal hún heita! Falleg lífgimbur í Grobbholti var skýrð í höfuðið á Boggu við hátíðlega athöfn.
![bogga10014 035](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/10/bogga10014-035-1024x682.jpg)
Valdimar Guðmannsson fyrrverandi veraklýðsforingi frá Blönduósi var heiðursgsetur enda var hann náinn samstarfsmaður Boggu þegar hann starfaði að verkalýðsmálum. Hér skálar hann fyrir Boggu úr horni í Grobbholti.
![bogga10014 096](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/10/bogga10014-096-1024x682.jpg)
Menn færðu sig um sett í félagsaðstöðu stéttarfélaganna. Þar var haldið áfram að syngja fram eftir kvöldi.
![bogga10014 170](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/10/bogga10014-170-1024x682.jpg)
Bubbi hvað, Þórdís fór á kostum.
![bogga10014 105](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/10/bogga10014-105-1024x682.jpg)
Valdimar færði Boggu fallega gjöf um leið og hann þakkaði henni samstarfið að verkalýðsmálum til fjölda ára.
![bogga10014 126](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/10/bogga10014-126-1024x682.jpg)
Misti andlitið. Bogga fékk sérstök verðlaun, Benni 2014, frá félögum sínum í Framsýn. Eins og sjá má komu verðlaunin Boggu verulega á óvart.
![bogga10014 141](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/10/bogga10014-141-1024x682.jpg)
Formaður Framsýnar þakkaði Valdimari og Ólöfu konu hans fyrir samstarfið í gegnum tíðina og færði þeim smá gjöf frá félaginu.
![bogga10014 131](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/10/bogga10014-131-1024x682.jpg)
Elsku Bogga, takk fyrir okkur og allt það sem þú hefur gert fyrir stéttarfélagið Framsýn sem er eitt öflugasta stéttarfélag landsins.