Starfsgreinasamband Íslands sendi nýlega frá sér tvær áhugaverðar ályktanir í kjölfar formannafundar sambandsins í lok mars. Fundurinn hafnar gjaldtöku við náttúruperlur og lýsir yfir miklum áhyggjum af þeim aðstöðumun sem fólk býr við sem á langt að sækja grunnþjónustu.
Starfsgreinasambandið hafnar gjaldtöku við náttúruperlur
Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands, haldinn í Reykjavík 27. mars 2014 varar við þeirri þróun að gjald sé tekið af einstaklingum sem vilja heimsækja og skoða náttúruperlur á Íslandi. Flestir hafa skilning á því að það þarf fjármuni til að halda stöðunum við og vernda náttúruna fyrir átroðningi. Slíkir fjármunir eiga hins vegar að koma úr sameiginlegum sjóðum enda á gjaldtaka að fara í gegnum sameiginlega sjóði líka, hvort sem það verður í formi náttúrupassa eða skatts á ferðaþjónustu. Það er ófært að einstaka aðilar innheimti gjald eftir eigin höfði á einstaka stöðum og er lögmæti slíkrar innheimtu mjög á reiki. Náttúruperlur eru auðlind þjóðarinnar og sameiginleg eign landsmanna. Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands vara við þeirri þróun að náttúruperlur séu notaðar til arðs eingöngu fyrir fáa einstaklinga.
Jafna þarf aðstöðumun eftir landsvæðum
Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands, haldinn í Reykjavík 27. mars 2014 lýsir yfir áhyggjum að þeim aðstöðumun sem fólk býr við eftir búsetu á mismunandi landsvæðum. Misjafnt aðgengi að grunnþjónustu svo sem heilbrigðisþjónustu verður þess valdandi að launafólk þarf að nýta sumarfrí og veikindadaga til að sækja þjónustu um langan veg. Þetta kemur niður á frídögum fólks og skekkir samkeppnisstöðu fyrirtækja um landið. Þar að auki fylgir mismikill ferða- og dvalarkostnaður fyrir fólk sem þarf að nýta sér þjónustu fjarri heimabyggð og kemur fram sem hrein kjaraskerðing launafólks.. Misvægið hefur aukist enn eftir því sem þjónusta hefur dregist saman síðustu ár og verður ekki litið fram hjá miklum og vaxandi aðstöðumun lengur. Formannafundur Starfsgreinasambandsins hvetur eindregið til þess að ríki, byggðastofnun og aðilar vinnumarkaðarins taki höndum saman um að finna lausnir til að vinna gegn þessu misrétti.SGS mótmælir gjaldtöku á náttúruperlur á Íslandi.