Verkalýðsfélag Þórshafnar stóð fyrir góðum undirbúningsfundi í gær um mótun kröfugerðar fyrir starfsmenn sveitarfélaga. Félagið hafði áður óskað eftir samstarfi við Framsýn um kjarasamningsgerðina. Framsýn mun funda með starfsmönnum sveitarfélaga á félagssvæðinu í kvöld og ganga í kjölfarið frá kröfugerð. Félögin tvö, Framsýn og Verkalýðsfélag Þórshafnar hafa þegar gengið frá viðræðuáætlun við Samband íslenskra sveitarfélaga og óskað eftir fundi með þeim á næstu vikum um kröfugerðina en hún verður klár um næstu helgi. Forsvarsmenn Sambandsins hafa tekið beiðninni vel.
Það er alltaf mjög heimilislegt á fundum hjá Verklýðsfélagi Þórshafnar, boðið upp á kaffi og bland í poka. Hér er starfsmaður félagsins og heiðurskonan, Kristín Kristjánsdóttir, að koma namminu fyrir á borðum fundarmanna.
Fólk á öllum aldri var á fundinum. Hér eru tvær ungar og áhugasamar, Margrét Höskuldsdóttir og Sigríður Friðný Halldórsdóttir.