Launakönnun Deildar verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar var framkvæmd á tímabilinu janúar til febrúar 2013. Samtals fengu 135 félagsmenn könnun. Samtals tóku 30 félagsmenn þátt. Þátttaka var því 22%. Af 30 svarendum voru 16 í 100% starfshlutfalli og 14 svarendur í lægra starfshlutfalli. Ósamræmi var í svörum við spurningum 3 og 4 annars vegar og spurningu 5 hins vegar. Þannig pössuðu heildarlaun í spurningu 3 ekki við heildarlaun skv. spurningu 5 og þá pössuðu grunnlaun skv. sp. 4 ekki við grunnlaun skv. spurningu 5. Þar sem þessa misræmis gætir í svörunum er ákveðinn fyrirvari settur við réttmæti niðurstaðna sem birtar eru í spurningum 3, 4 og 5. Þá er einnig rétt að nefna að úrtakið er lítið, bæði sem hlutfall af þeim sem fengu könnunina sem og í tölfræðilegu samhengi.
Spurning 1 – Aldur þátttakenda?
Þátttakendur voru á aldrinum 16 – 68 ára og meðalaldur var 46 ár.
Spurning 2 – Kyn þátttakenda?
Það voru 23 konur (77%) og 7 karlar (23%) sem svöruðu.
Spurning 3 – Heildarlaun
Meðaltal heildarlauna svarenda var 290.412 kr. Meðaltals starfshlutfall var 80%.
Spurning 4 – Grunnlaun
Meðaltal grunnlauna svarenda var 266.724 kr. Meðaltals starfshlutfall var 80%.
Spurning 5 – Skipting í grunnlaun, yfirvinnu, bílastyrk og annað
Í ljósi ósamræmis upplýsinga er ekki talin ástæða til að birta niðurstöður hér.
Spurning 6 – Hlunnindi
Þrír svarendur fá greitt fyrir hlunnindi (10% svarenda).
Spurning 7 – Starfsaldur
Meðaltals starfsaldur svarenda er 27 ár.
Spurning 8 – Menntun
Gunnskólamenntun 37%
Framhaldsskólamenntun 37%
Iðnnám 13%
Háskólanám 13%
Spurning 9 – Starfshlutfall
Meðaltals starfshlutfall er 80%.
Spurning 10 – Fjöldi starfsmanna á vinnustað
Meðaltalsfjöldi starfsmanna á vinnustað var 10.
Spurning 11 – Mannaforráð
Samtals voru 6 svarendur af 30 með mannaforráð eða 20%.
Spurning 12 – Verslun eða skrifstofustarf
Samtals skiptust störf svarenda jafnt í verslunarstörf og skrifstofustörf, þ.e. 15 í hvoru.
Spurning 13 – Launaviðtal á síðustu 12 mánuðum? Árangur?
Það voru 10 svarendur sem fengu launaviðtal á síðustu 12 mánuðum eða 33% svarenda.
Þeir sem fengu launaviðtal á síðustu 12 mánuðum sögðu launaviðtalið hafa borið árangur (100% árangur úr launaviðtölum).
Spurning 14 – Hefur þú leitað til skrifstofu Framsýnar sl. 12 mán.?
Samtals höfðu 53% svarenda leitað til skrifstofunnar á síðustu 12 mánuðum og af þeim sem leituðu til skrifstofunnar höfðu allir fengið aðstoð/úrlausn sinna mála.
Spurning 15 – Hefur þú heimsótt vefsíðu Framsýnar sl. 6 mán.?
Samtals höfðu 87% svarenda heimsótt heimasíðu Framsýnar á síðustu 6 mánuðum.
Spurning 16 – Ertu sátt/sáttur við starfsemi DVS hjá Framsýn?
Samtals svöruðu 28 af 30 játandi eða um 93% svarenda. Tveir svöruðu ekki.
Spurning 17 – Athugasemdir
Ein jákvæð athugasemd á þá leið að halda áfram góðu starfi.
Spurning 18 – Lestu fréttabréf stéttarfélaganna?
Allir svarendur lesa fréttabréfið.