Það deilir engin um mikilvægi þess að konur og karlar fari í reglubundna krabbameinsleit enda hafa fjölmörg mannslíf bjargast eftir að krabbamein hefur uppgötvast á byrjunarstigi. Hins vegar er full ástæða til að gera alvarlegar athugsemdir við nýja gjaldskrá fyrir krabbameinsleit hjá konum sem tók gildi um síðustu áramót.
Samkvæmt gjaldskránni hækkar almennt gjald fyrir krabbameinsleit hjá konum úr krónum 3.700,- í 6.000 krónur sem er um 62% hækkun milli ára. Eðlilega er mörgum brugðið við þessa miklu hækkun og hafa konur sett sig í samband við Skrifstofu stéttarfélaganna vegna þessa, en hefð er fyrir því að stéttarfélög niðurgreiði krabbameinsleitina fyrir sína félagsmenn enda félögunum umhugað um heilsufar félagsmanna.
Þá er jafnframt athyglisvert að skoða nýju gjaldskrána en þar er sérstaklega tekið fram að mörg stéttarfélög endurgreiði hópskoðunargjaldið. Skyldi það vera þess vegna sem gjaldskráin er hækkuð svona gífurlega milli ára?
Þess ber að geta að það eru ekki allar konur í stéttarfélögum. Það er heldur ekki skylda stéttarfélaga að niðurgreiða krabbameinsleit fyrir félagsmenn. Þess vegna er full ástæða til þess að hafa verulegar áhyggjur af þessum taktlausu og glórulausu hækkunum.
Það eiga allir að sitja við sama borð enda um mikilvægar forvarnir að ræða. Það er skelfilegt til þess að vita hækkanirnar munu án efa draga úr ásókn kvenna í krabbameinsleit, sérstaklega þeirra efnaminni sem hafa hreinlega ekki efni á því að takast á við þessar miklu hækkanir.
Þess vegna er eðlilegt að krefjast þess að hlutaðeigandi aðilar endurskoði gjaldskrárbreytingarnar þegar í stað.