Við Óskarsstöðina á Raufarhöfn stendur fallegt listaverk til heiðurs síldarstúlkunum sem söltuðu niður síld á síldarárunum. Sköpun listaverksins var samstarfsverkefni Ingibjargar Guðmundsdóttur listakonu frá Kópaskeri og Björns Halldórssonar frá Valþjófsstöðum í Núpasveit við Öxarfjörð. Full ástæða er til að hvetja fólk til að heimsækja Raufarhöfn og heilsa upp á síldarstúlkuna sem starir út á hafið meðan hún bíður eftir næsta farmi af silfri hafsins.
Þess má geta að á sjöunda áratugnum var Raufarhöfn einn mesti síldarbærinn á Íslandi. Á þeim tíma voru allt að 11 síldarsöltunarstöðvar starfandi samtímis. Þá komu um 10% af tekjum þjóðarinnar frá Raufarhöfn. Íbúar voru hátt í 700 og á síldarvertíðinni streymdi aðkomufólk til Raufarhafnar í vinnu þannig að íbúatalan í þorpinu margfaldaðist. Síldarstúlkan sem er til minningar um síldarárin á Raufarhöfn er unnin í rekavið.
Beðið eftir silfri hafsins. Á sínum tíma voru allt að 11 síldarsöltunarstöðvar á Raufarhöfn og í landlegum er talið að um 4000 manns hafi verið á Raufarhöfn, það er sjómenn og landverkafólk.