Dyravarðanámskeið verður haldið í sal stéttarfélaganna á Húsavík laugardaginn 11. febrúar 2012 á vegum lögreglunnar á Húsavík og Framsýnar stéttarfélags. Hægt er að skrá sig á námskeiðið hjá Skrifstofu stéttarfélaganna eða hjá lögreglunni á Húsavík til 7. febrúar. Námskeiðið er félagsmönnum Framsýnar að kostnaðarlausu. Aðrir greiða kr. 5000. Sjá dagskrá.
Dagskrá:
1. kl. 10:00-10:15 Kjarasamningsbundin réttindi dyravarða. (Aðalsteinn Baldursson)
2. kl. 10:15-12:00 Skyndihjálp. (RKÍ- Húsavíkurdeild)
Hádegishlé
3. kl. 13:00-14:00 Eldvarnir. (Jón Ásberg Salómonsson)
4. kl. 14:00-15:00 Lög og reglur. (Svavar Pálsson)
5. kl. 15:30-16:00 Samskipti dyravarða og lögreglu. (Sigurður Brynjúlfsson)
6. kl. 16:00-17:30 Valdbeiting / Sjálfsvörn. (Jón Óðinn Óðinsson)
7. kl. 17:30 Námskeiðsslit. Afhending viðurkenninga.
Ath. Hlé verða tekin eftir samkomulagi þátttakenda og fyrirlesara. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti á námskeiðsstað.
Lögreglan á Húsavík
Framsýn- stéttarfélag
Lögreglan á Húsavík og Framsýn standa fyrir dyravarðanámskeiði í febrúar. Þar er farið yfir mikilvæg atriði er snerta gæslu á veitingahúsum og öðrum stöðum þar sem dyraverðir eru mikilvægir.