Í tilefni af 110 ára afmæli Ísfélags Vestmannaeyja hf. þann 1. desember s.l. bauð félagið öllum starfsmönnum, bæjarbúum og sveitungum til kaffisamsætis í félagsheimilinu Þórsveri á afmælisdaginn. Kvenfélagið Hvöt sá um glæsilegar kaffiveitingar og Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson stjórnarformaður setti samkomuna og bauð gestina velkomna.
Ísfélagið fagnaði ekki bara afmælinu heldur færði heimamönnum veglegar gjafir í tilefni af afmælinu. Eftirtaldir fengu gjafir:
Heilsugæslustöðin á Þórshöfn kr. 1.000.000
Björgunarsveitin Hafliði, Þórshöfn kr. 1.000.000
Kvenfélagið á Þórshöfn kr. 500.000
Tónlistarskólinn á Þórshöfn kr. 250.000
Rauðakrossdeildin á Þórshöfn kr. 250.000
Samtals styrkir til góðra málefna kr. 3.000.000
Til viðbótar má geta þess að Ísfélagið ákvað að greiða starfsmönnum fyrirtækisins í landi kr. 200 þúsund auk kjarasamningsbundinnar desemberuppbótar. Ljóst er að mikil ánægja er meðal starfsmanna og samfélagsins á Þórshöfn með launauppbótina og gjafmildi fyrirtækisins