Framsýn- stéttarfélag, Starfsmannafélag Húsavíkur og Þingiðn- félag iðnaðarmanna funduðu í dag um boðaðar tillögur Fjárlaganefndar Alþingis um verulegar skerðingar á fjárframlögum til Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Mikil reiði var meðal fundarmanna. Stéttarfélögin samþykktu að senda sameiginlega frá sér svohljóðandi ályktun um málið.
Ályktun
Um boðaðan niðurskurð á fjárveitingum til HÞ
Enn á ný sjá stjórnvöld ástæðu til að ráðast að grunnstoðum atvinnulífsins í Þingeyjarsýslum með ruddaskap.
Boðaðar tillögur Fjárlaganefndar Alþingis gera ráð fyrir skerðingum á fjárframlögum til Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga um 71,6 m.kr. eða um 8,5% á árinu 2012.
Þessi viðbótar skerðing er boðuð þrátt fyrir að mjög fast hafi verið sótt að rekstri þessarar mikilvægu stofnunar á undanförnum árum. Forsvarsmenn og starfsmenn hafa gert allt til að bregðast við lækkandi framlögum til rekstrar með hagræðingu og aðhaldi í rekstri. Að mati stéttarfélaganna verður ekki lengra komist í sparnaði nema það sé markmið núverandi stjórnvalda að ganga endanlega frá starfsemi Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga með lokun.
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum krefjast þess að stjórnvöld leggi tillögurnar þegar í stað til hliðar, þar sem þær ógna mjög alvarlega heilbrigðisöryggi og þar með búsetuskilyrðum í Þingeyjarsýslum.
Að gefnu tilefni vilja stéttarfélögin minna á viljayfirlýsingu ríkistjórnar Íslands og sveitarfélaganna í Þingeyjarsýslum um uppbyggingu atvinnulífs í sýslunum, sem undirrituð var 25. maí 2011. Þar stendur orðrétt; „Aðilar eru sammála um mikilvægi þess að staðinn verði vörður um opinbera þjónustu á svæðinu, sem nauðsynleg er þegar til uppbyggingar kemur.“
Stéttarfélögin krefja stjórnvöld um skýringar á orðalaginu í viljayfirlýsingunni í ljósi tillögu Fjárlaganefndar sem gengur út á að lama starfsemi Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Öflug heilbrigðisþjónusta á svæðinu er ein af megin forsendum þess að öflugt atvinnulíf þrífist í Þingeyjarsýslum og því kemur ekki til greina að veikja þjónustuna frá því sem nú er.
Húsavík 11. október 2011
Framsýn, stéttarfélag
Starfsmannafélag Húsavíkur
Þingiðn, félag iðnaðarmanna