Það iðaði allt af lífi hjá Garðræktarfélagi Reykhverfinga þegar fulltrúi Framsýnar fór í vinnustaðaheimsókn á fimmtudaginn. Um 14 ársstörf eru hjá fyrirtækinu en athygli vakti fjöldi býflugna sem var við störf í gróðurhúsunum. Þær gegna mikilvægu hlutverki í lífríkinu og að sögn Páls Ólafssonar framkvæmdastjóra eru býflugurnar um níuhundruð. Á síðasta ári framleiddi Garðræktarfélagið um 370 tonn af grænmeti, mest tómötum en fyrirtækið er eitt það stærsta á Íslandi.
Gleðin er við völd í gróðurhúsunum á Hveravöllum.
Stefán sem er hörku starfsmaður er hér við störf í einu af gróðurhúsunum þar sem kuldanum er ekki fyrir að fara.
Að sjálfsögðu þarf að ganga frá gróðurmoldinni fyrir sumarið.