Kennari óskast í Borgarhólsskóla
Okkur vantar kennara í afleysingu til vors 2025 í náttúru- og stærðfræðikennslu. Frábært og spennandi tækifæri.antar kennara í afleysingu til vors 2025 í náttúru- og stærðfræðikennslu. Frábært og spennandi tækifæri, 100% starf.
Umsóknarfrestur er til 21. nóvember 2024.
Umsóknum skal sikla í tölvupósti á netfangið threyk@borgarholsskoli.is
Leikskólinn Ylur
Leikskólakennari óskast
Leikskólakennari og/eða deildarstjóri óskast til starfa við leikskólann Yl í Mývatnssveit sem fyrst. Um er að ræða 100% starf.
Ylur er tveggja deilda leikskóli í Mývatnssveit en grunnskólinn Reykjahlíðarskóli og leikskólinn Ylur eru samreknir. 21 nemandi er í leikskólanum á aldrinum 1 árs til 5 ára. Leikskólinn er grænfána- og heilsueflandi leikskóli sem leggur áherslu á heilsueflingu, vináttu, leik og útikennslu. Mikið og gott samstarf er á milli leik- og grunnskólans og íþróttamiðstöðvarinnar. Um er að ræða spennandi starf fyrir metnaðarfullan starfsmann. Leitað er að einstaklingi með góða hæfni og lipurð í samskiptum, með góða þekkingu og reynslu af leikskólastarfi.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2024
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt stefnu og skipulagi skólans undir stjórn yfirmanns.
- Vinna í nánu samstarfi við foreldra/forráðafólk nemenda
- Taka þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við yfirmann
- Sinna verkefnum er varðar uppeldi og menntun nemenda sem yfirmaður felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun, uppeldismenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Færni í samskiptum.
- Frumkvæði í starfi.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Góð íslenskukunnátta
- Reynsla af starfi leikskólakennara er mikill kostur
Við leitum að starfsfólki sem
- Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
- Hefur brennandi áhuga á að starfa með börnum
- Er lausnamiðað og vill taka þátt i samstarfi og teymisvinnu
- Hefur reynslu/menntun af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum
Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.
Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskipum, stundvísi, hreint sakarvottorð og hafa náð þrepi C1 í íslensku.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknir skulu sendast á skólastjóra hjordis@reykjahlidarskoli.is Með umsókn skal fylgja greinagóð ferilskrá, kynningarbréf og meðmælendur.
Nánari upplýsingar um leikskólann er hægt að finna á https://www.reykjahlidarskoli.is/leikskoli
Frekari upplýsingar gefur skólastjóri, Hjördís Albertsdóttir, hjordis@reykjahlidarskoli.is og í síma 464-4375.
Félagsstarf eldri borgara
Félagsstarf eldri borgara
Þingeyjarsveit auglýsir eftir starfsmanni við félagsstarf eldri borgara í Mývatnssveit
Laus er 25% staða starfsmanns við félagsstarf eldri borgara í Þingeyjarsveit. Um er að ræða skipulag, undirbúning og umsjón á samverustundum eldri borgara. Samverustundir eru tvisvar í viku, annarsvegar í Mývatnssveit og hins vegar til skiptis í Þingeyjarskóla og Stórutjarnaskóla.
Starfið sem um ræðir er 25% starf við félagsstarf eldri borgara í Mývatnssveit, einn dag í viku. Starfmaður verður í samstarfi við starfsmenn félagsstarfsins á láglendinu.
Allar frekari upplýsingar veitir verkefnastjóri fjölskyldumála, Ásta F. Flosadóttir á netfangið: asta.flosadottir@thingeyjarsveit.is.
Starfið hentar öllum kynjum og eru áhugasamir einstaklingar hvattir til að sækja um, óháð kyni.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 19.nóvember. Skila skal umsóknum á skrifstofur Þingeyjarsveitar, eða á netfangið umsokn@thingeyjarsveit.is
Starfsfólk á leikskólann Krílabæ
Leikskóladeildir Þingeyjarskóla
Auglýstar stöður:
Leikskólakennari í Barnaborg, 80-100% starf
Leiðbeinandi í Barnaborg, 80-100% starf
Leiðbeinandi í Krílabæ hlutastarf
Einstakling til afleysinga m.a. í eldhúsi og við þrif
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.
umsókn) eða menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af starfi á leikskólastigi er æskileg.
- Áhugi á starfi með börnum og velferð þeirra.
- Lipurð og mikil hæfni í mannlegum
samskiptum.
- Ábyrgð, samviskusemi og stundvísi.
- Hreint sakavottorð.
reynslu sem nýtist í starfi sbr. lög nr. 95/2019.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Ráðið er í störfin frá 15. október
2024 eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Nanna Marteinsdóttir leikskólastjóri í síma 464-3590/898-0790 eða í gegnum
netfangið nanna@thingskoli.is
Okkur vantar öflugt fagfólk í geðheilsuteymið okkar
Laus störf í félagsmiðstöð á Húsavík
Félagsmiðstöðin Tún á Húsavík auglýsir eftir starfsfólki.
Unnið er með ungmennum á aldursbilinu 10-16 ára. Vinnutími getur verið breytilegur en fer að mestu leyti fram milli kl 17:00-22:00 tvo virka daga í viku. Óskað er eftir forstöðumanni æskulýðsmiðstöðvar og tveimur frístundaleiðbeinendum.
Starfslýsing frístundaleiðbeinanda:
Vinnur með börnum, unglingum eða ungmennum, í félagsmiðstöð á Húsavík. Starfar undir stjórn yfirmanns.
Starfslýsing forstöðumanns æskulýðsmiðstöðvar:
Forstöðumaður stýrir faglegu starfi, sér um rekstur og innkaup. Starfsmaður er með viðvarandi ábyrgð á verkstjórnun annarra starfsmanna.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Hafa náð 18 ára aldri
- Hafa hreint sakarvottorð
- Hafa gott vald á íslensku
- Hafa áhuga á að vinna með börnum
- Geta unnið vel með öðrum
- Vera lipur og jákvæður í mannlegum samskiptum
- Hafa frumkvæði og geta verið sveigjanlegur í starfi
- Reynsla af starfi með börnum/ungmönnum er æskileg
Umsóknarfrestur er til og með 6. nóvember 2023.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Eingöngu er tekið við umsóknum sem berast með því að fylla út rafrænt umsóknareyðublað á vef Norðurþings – Umsókn um starf | Norðurþing (nordurthing.is)
Frekari upplýsingar veitir Hafrún Olgeirsdóttir, íþrótta- og tómstundafulltrúi Norðurþings í síma 464-6106 – hafrun@nordurthing.is
Okkur vantar öflugt fagfólk í geðheilsuteymið okkar
HSN auglýsir eftir öflugt fagfólk í geðheilsuteymið okkar
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN), óskar eftir starfsfólki í 50-100% starfshlutfall í geðheilsuteymi stofnunarinnar.
Við leitum að heilbrigðisstarfsmanni með gilt starfsleyfi frá Embætti Landlæknis. Starfsemi geðheilsuteymis HSN er í stöðugri þróun. Við leitum að starfsmanni sem er tilbúinn að taka þátt í starfi geðheilsuteymis HSN og vinna að frekari uppbyggingu þjónustu teymisins. Geðheilsuteymi HSN er þverfaglegt endurhæfingar- og meðferðarteymi fyrir einstaklinga 18 ára og eldri. Mikil áhersla er lögð á samvinnu við aðrar stofnanir samfélagsins s.s. félagsþjónustu og barnavernd.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í vinnu geðheilsuteymis HSN
- Málastjórn í málefnum skjólstæðinga geðheilsuteymis
- Frekari uppbygging gagnreyndra meðferðarúrræða í samráði við aðra starfsmenn teymis
- Samvinna við aðrar fagstéttir
- Samvinna við aðrar stofnanir svo sem félagsþjónustu og barnavernd
Hæfniskröfur
- Heilbrigðisstarfsmaður með löggildingu og réttindi til starfa á Íslandi
- Greinagóð þekking á algengustu geðröskunum
- Reynsla af teymisvinnu
- Þekking á gagnreyndum meðferðarúrræðum við geðröskunum
- Framúrskarandi samskiptahæfni og sveigjanleiki í starfi
- Frumkvæði, áhugi og metnaður til að ná árangri
- Ökuleyfi
- Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Geðheilsuteymið er 2. stigs þjónusta sem veitir sérhæfða endurhæfingu og meðferð vegna geðraskana án innlagna á sjúkrahús. Markhópar þjónustu teymisins eru þeir einstaklingar með geðraskanir sem þurfa meiri þjónustu en hægt er að veita í fyrstu línu heilsugæslunnar en þurfa ekki á þjónustu geðdeildar að halda.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfatorg.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá auk kynningarbréfs þar sem hæfni við komandi til að sinna starfinu er rökstudd. Stefnt er að ráðningu sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing
Heilbrigðisstofnun Norðurlands veitir heilsugæsluþjónustu, sjúkrahúsþjónustu og öldurnarþjónustu í formi hjúkrunar- og dvalarrýma. Þjónustusvæðið nær frá Blönduósi í vestri til Þórhafnar í austri. Meginstarfstöðvar HSN eru starfstöövarnar á Akureyri, Blönduósi, Dalvík, Fjallabyggð, Húsavík og Sauðárkróki. Nánari upplýsngar um HSN má finna á vefsíðunni www.hsn.is
Starfshlutfall er 50-100%
Nánari upplýsingar veitir
Svana Rún Símonardóttir - svana.run.simonardottir@hsn.is - 432 4978
Pétur Maack Þorsteinsson - petur.maack@hsn.is - 432 4970
Smelltu hér til að sækja um starfið
Starfsfólk í framleiðslu
Starfsfólk í framleiðslu
PCC BakkiSilicon á Húsavík hóf störf árið 2018 og er ein fremsta verksmiðja á sínu sviði í heiminum bæði þegar litið er til tækni og umhverfismála. Sílíkon málmur er notaður sem álblanda og er nýttur í efnaiðnaði meðal annars til framleiðslu á síoxönum og sílíkoni. Í verksmiðjunni okkar á Húsavík starfa um 150 manns í fjölbreyttum störfum. Fyrirtækið leggur áherslu á jöfn tækifæri starfsfólks, teymisvinnu og starfsanda, ásamt ríkri öryggis og umhverfisvitund. Við leitum nú að umsækendum í framleiðsludeild til að koma til hóps við okkar frábæra teymi sem leiðir og samhæfir rekstur framleiðslu PCC BakkiSilicon.
Framleiðslustarfsfólk hjá PCC BakkiSilicon vinna í teymum sem sameiginlega sinna fjölbreyttum verkefnum.
Við hvetjum fólk til að sækja um óháð kyni.
Við bjóðum starfsfólki okkar.
- Áhugaverð störf í alþjóðlegu umhverfi
- Faglegar áskoranir og vinna með nútíma tækni
- Samkeppnishæf grunnlaun
- Góða þjálfun
- Námskeið, þjálfun og símenntun
- Tækifæri til starfsþróunar
- Hópefli
- Íþróttatímar einu sinni í viku
- Mötuneyti
- Starfsmannafélag
Sótt er um starfið hér