Táknrænir sætisbekkir færðir samfélaginu

Á aðalfundi Framsýnar 2025 var ákveðið að minnast Kvennaársins 2025 með gjöf á fimm sætisbekkjum til samfélagsins sem komið verði fyrir í sjávarbyggðum á félagssvæðinu. Eru bekkirnir gefnir af virðingu við konur sem misst hafa ástvini sína í greipar Ægis. Það þótti vel við hæfi að fyrsti bekkurinn yrði vígður formlega á Kvennafrídaginn á Húsavík, 24. október 2025, en honum var valinn staður á Stangarbakkanum.  Viðburðinn var vel sóttur, um 60 konur voru við vígsluna en þær höfðu flestar fyrr um morguninn lagt niður störf í Borgarhólsskóla á Húsavík í tilefni dagsins. Við þessa fallegu athöfn sagði formaður félagsins nokkur orð og varaformaður flutti  stutt ávarp í tilefni gjafarinnar.  Sólveig Halla Kristjánsdóttir sóknarprestur og Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri Norðurþings voru viðstaddar athöfnina og tóku til máls ásamt öðrum góðum gestum sem tjáðu sig um gjöfina og tilurð hennar. Jafnframt er búið að koma upp bekkjum á Raufarhöfn, Kópaskeri og í Flatey á Skjálfanda. Meðfylgjandi mynd er tekin af bekknum í Flatey. Á næstu dögum verður síðasta bekknum komið fyrir við Tungulendingu á Tjörnesi. Þessar upplýsingar komu fram á aðalfundi Framsýnar í maí sl.

Deila á