FRÉTTIR OG TILKYNNINGAR

Hvalaskoðunarbæklingurinn kominn út

Hvalaskoðunarbæklingurinn kominn út

Hinn árlegi bæklingur um kaup og kjör í Hvalaskoðun er kominn úr prentun og liggur á lausu á Skrifstofu stéttarfélaganna um þessar mundir. Þá er hann að sjálfsögðu einnig hér á heimasíðunni.
Vel heppnuð Kvennaráðstefna ASÍ – Aga og Ósk á staðnum

Vel heppnuð Kvennaráðstefna ASÍ – Aga og Ósk á staðnum

Kvennaráðstefna ASÍ var haldin fyrir helgina í Reykjanesbæ, það er  27.-28. maí á kvennaárinu 2025. Þar voru samankomnar um 65 konur víðsvegar af landinu til að ræða málin og kjarna meginviðfangsefni kvenna í verkalýðshreyfingunni undir yfirskriftinni: Kvenfrelsi og stéttabarátta á Kvennaári. Á ráðstefnunni var kvennasamstöðunni fagnað og áréttað mikilvægi þess að efla hana og rækta. Á ráðstefnunni …
Formaður Framsýnar í viðtali vegna uppsagna hjá PCC

Formaður Framsýnar í viðtali vegna uppsagna hjá PCC

Stöð2 fjallaði í gær um hópuppsagnirnar hjá PCC á Bakka. Meðal annars var tekið viðtal við formann Framsýnar um stöðuna, Aðalstein Árna Baldursson. Hér má sjá samantekt sem tekin er af visi.is https://www.visir.is/g/20252732034d/lokun-kisilvers-a-bakka-thetta-er-gratbolvad-
Ánægjuleg vinnustaðaheimsókn

Ánægjuleg vinnustaðaheimsókn

Forsvarsmenn Framsýnar fóru í vinnustaðaheimsókn í morgun til Garðræktarfélags Reykhverfinga en þar starfa um 20 starfsmenn. Byrjað var á því að funda með eigendum fyrirtækisins áður en boðað var til starfsmannafundar þar sem farið var yfir nokkur mál er snerta starfsemina á Hveravöllum sem er afar blómleg. Starfsmenn enduðu á því að kjósa sér trúnaðarmenn. …
Starfsemi PCC í mikilli óvissu – 80 starfsmönnum sagt upp störfum

Starfsemi PCC í mikilli óvissu – 80 starfsmönnum sagt upp störfum

PCC BakkiSilicon hf. á Húsavík hefur undanfarið m.a. fundað með þingmönnum, ráðherrum, Landsvirkjun, sveitarstjórnarmönnum og fulltrúum Framsýnar um stöðu fyrirtækisins og framtíðarhorfur. Fyrirtækið hefur nú tilkynnt um tímabundna rekstrarstöðvun, frá og með miðjum júlí. Ástæðan er sögð erfiðleikar á mörkuðum fyrir kísilmálm og raskanir sem rekja megi til tollastríðs. Um 80 manns munu missa vinnuna …
Ferðin sem beðið hefur verið eftir – Flateyjardalur framundan!

Ferðin sem beðið hefur verið eftir – Flateyjardalur framundan!

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum  hafa mörg undanfarin ár staðið fyrir skemmtiferðum fyrir félagsmenn sína og hafa þær jafnan verið vinsælar og vel sóttar. Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að bjóða upp á sumarferð á Flateyjardal í ár, laugardaginn 9. ágúst. Farið verður frá Skrifstofu stéttarfélaganna kl. 09:00. Fyrir nokkrum árum var boðið upp á slíka …

Fréttabréf Framsýnar

Deila á